leynifélagið lúffan

...lúff lúff

23.07.2006 19:49:50 / vinstri lúffan

new blog


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 16:26:16 / vinstri lúffan

fjút fjút fjút

Ég er illa bitur núna... er að horfa á Bergkamp Testimonial leikinn á Sýn... fyrsti leikurinn á Emirates Stadium... ef ég væri ekki heimsk beygla þá væri ég á vellinum... átti miða en ákvað að fara ekki....

sé ég eftir því.... ójá!!!    :( :evil: :^)

 annars á ég samt bjútífúl car loksins... :lol:
 fékk hann i gær... eeen... það þarf samt örugglega að sprauta hann aftur eftir helgina... 8|

13 dagar í eyjar pípol... 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 15:30:58 / vinstri lúffan

...

5ti í sumarfríi í dag... veeerrrí næs.... svona fyrir utan það að gaurarnir sem eru að standsetja íbúðina við hliðina á minni þurfa alltaf að byrja að bora kl. 7.54 á morgnana.... ekki vinsælt... eeenn... þá er bara að snúa sér á hina hliðina og sofna aftur... sem er svo sweet!! :D

Kokteilapartíið á föstudaginn heppnaðist bara nokkuð vel.... drukkum fullt af kokteilum, enduðum svo bara í einum sem ég bjó til og hefur ekki enn fengið nafn... en hann er officially besti kokteill sem ég hef smakkað... og sá fallegasti líka... þrátt fyrir það!!!! (skærbleikur... ef það skyldi koma einhverjum á óvart) ;)
Fórum niðrí bæ og stefnan var sett á sálarballið... meikuðum svona ca. 10 mínútur þar áður en við bökkuðum út aftur niðurtroðnar og samanklesstar... örugglega svona 2x of mikið af fólki þarna inni... :S
en ágætis kvöld samt sem áður... það var a.m.k. tekin ákvörðun um það að eftir 3 ár verður haldið til danmerkur í "gæsunar-ferð" (sama hvort það verður bara 1 sem ferðast frá íslandi eða fleiri ;))

Svo eru bara 16 dagar í þjóðhátíð... újé.... tilhlökkunin er að ná hámarki... því miður er hins vegar orðið ljóst að Ester mun ekki ná að komast til Eyja með okkur hinum.... hún verður e-s staðar á sundi milli lands og eyja á meðan við hin verðum í dalnum... því á e-n misterious way mun hún falla fyrir borð....

Nú er ég bara á leiðinni útí góða veðrið að leika aftur... og vooona að toyota fari nú að hringja og segja mér að sækja bílinn... :D

ohhh.... update.... grátgrát... fæ bílinn ekki í dag.... ljóti gámurinn réðst á hann og skemmdann.... hann er í viðgerð... :cry:


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 16:58:00 / vinstri lúffan

stórtæka ég!!!

Jæja... þá er ég loksins flutt!!!  :D
Íbúðin er alveg frábær... ekkert rosa stór en alveg mjög fín stærð fyrir mig :lol:
Er bara á fullu að koma mér almennilega fyrir og fyrsta dinnerpartíið verður haldið í kvöld...og það verður gert með stæl þar sem það er kokteilaþema.... þannig að ef e-r hittir mig hressa í bænum (á sálarballinu) þá er það ástæðan 8)

Eeeenn... Gulla litla ákvað líka að vera pínu mikil eyðslukló í dag... var að koma úr Toyota umboðinu þar sem ég skellti mér á Toyota Aygo... :o
Fæ hann afhentan í næstu viku svo ég verð algjör pæja í sumarfríinu... hehehe :haha:

En sumarfrí er einmitt orðið... í þessum skrifuðum ætla ég að slökkva á tölvunni og fara heim í sumarfrí... :D

tjuuussss


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 22:31:57 / vinstri lúffan

umtj umtj... tötts mí, tötts mí

újé... dagurinn í dag bar með sér ansi hreint góðar fréttir... :lol:
byrjaði daginn snemma og það borgaði sig því viðfengum  miða með Herjólfi á þjóðhátíð, út á fimmtudegi og heim á mánudegi... theink jú verí næs

... og svo... er kaupsamningur á miðvikudagsmorguninn og afhending í kjölfarið á því...

þannig það stefnir allt í að kokteil dinnerinn verði haldinn í nýju höllinni minni  :haha:

...þ.e. ef þessi helv... flensudrulla sem er að herja á mig lætur sig hverfa eins fljótt og hún lét sjá sig :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 13:14:43 / vinstri lúffan

flöskudagur!!!

hobbahobba... loksins að líða að helginni.... alveg orðin til í smá útsofelsi... og jafnvel djamm!! 8)

Í gærkvöldi skelltum við Tandri okkur út í massa hjólreiðatúr... ætlunin var fyrst bara að hjóla smá hring.... eeenn... það endaði í risahring í kringum allan Garðabæinn, inní Hafnarfjörð og í gegnum hraunið aftur til baka!! Nokkuð vel afrekað bara hjá manneskju sem hefur ekki stigið á hjól í laaaangan tíma!! hehe
Verst bara að hnakkurinn á hjólinu sem ég var á er killer harður og að sjálfsögðu fékk ég það í hausinn í morgun þegar ég vaknaði alveg að dreeepast.... heheh... need i say more?!! :o

Svo er Eyjaplanið alveg að verða komið á hreint... pínu vesen svona með að fá far með Herjólfi... eeenn... hopefully þá reddast það á mánudaginn... annars er það bara Bakki 8)
Ester og Ari alveg að standa við sitt og ætla að mæta líka... hef verið tvisvar með þeim á þjóðhátíð áður... í fyrra skiptið var bilað gott veður og í seinna skiptið var hræðilegasta veður í manna minnum... mín kenning er sú að svona gangi þetta til skiptist og nú sé s.s. komið að góða veðrinu aftur!!! :D 8)

Ekkert að frétta í íbúðarmálum ennþá.... ég er just about að verða biluð á biðinni (þó hún sé nú ekkert búin að vera neitt hræðilega löng) og get ekki beðið eftir því að fá að flytja inn  :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 00:45:41 / vinstri lúffan

GÆS

Jæja... frekar svona erfiður dagur að kvöldi kominn... núna er ég svona hálfpartinn heimilislaus :S
Vorum s.s. í því í kvöld að klára að pakka og henda dótinu mínu í geymslu hjá Eddu. Ég fæ ekki íbúðina afhenta alveg strax :klikk: en í millibilsástandinu er það bara sófinn á Hótel Mamma (er einmitt búin að koma mér vel fyrir þar núna)

Ég er búin að vera svona pínu leið og niðurdregin undanfarna daga en það stendur vonandi til bóta... styttist í Eyjar og svona og ekki er það nú leiðinlegt :lol: Bara 30 dagar og ég get ekki beðið!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 23:18:18 / vinstri lúffan

How now, brown cow...

Ok... ég hef svosem ekkert að segja eeeennn....

Anchorman er náttla fyndnasta mynd í heimi og þetta myndband er bara æði!!!

Fyndnast


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 16:53:28 / vinstri lúffan

jahérnahér

...sunnudagur... got to love it... bara að liggja í leti fyrir framan sjónvarpið og gera ekki neitt....eeenn... hæganhægan... kannski dáldið erfitt þegar maður er með samviskubit yfir að vera ekki að pakka oní kassa... fæ mig bara ekki til að byrja á því :S

Annars var þetta tjill helgi.... engin útilega, ekkert djamm, ekkert rugl... bara leti 8)

Á föstudaginn fórum við Eva í bíó... og mæómæ... það var sko upplifun útaf fyrir sig... ætluðum að fara á Click í Smárabíó, en þegar það kom að okkur í röðinni þá var bara 1 miði eftir þannig að það féll um sjálft sig... til að gera nú eitthvað ákváðum við að bruna í Mjóddina og athuga hvort e-ð sniðugt væri í boði þar... öööö... skelltum okkur á Slither og mæ god ef hún kemst ekki á toppinn í Lélegumyndaklúbbnum þá veit ég ekki hvað....
Bæði var myndin horror og fólkið í salnum var heldur ekker til að hrópa húrra fyrir.... Eva orðaði þetta ágætlega þegar hún sagði þegar hún kom út: "mér líður eins og ég hafi verið rænd" haha... þetta var OF spes....!!! :$

Mig langar samt ennþá að sjá Click... :S


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 23:19:57 / vinstri lúffan

....endur fyrir löngu...

Ester þykist vera orðin of kúl fyrir blogg... mér finnst hún lúði!!!!

Rut gladdi mitt litla hjarta mikið áðan þegar hún lofaði að fara með mér á þjóðhátíð (þetta loforð var víst gefið á laugardaginn síðasta... en einhverra hluta vegna man ég ekki eftir því... gott og vel... fagna því samt!!!) Enda ekki seinna vænna að fara að festa þetta... ég er byrjuð á tékklistanum!!! (Eva þekkir þetta 8))

Það eru allir á leiðinni á Hróaskeldu og ég er bitur... mig langar þangað... who's game next year???

Flutningar verða ekki um helgina :S en vonandi þó fljótlega eftir hana... can't wait

Svona endrum og sinnum (og þá helst þegar ég hef afskaplega lítið að gera í vinnunni) þá fer ég á svona "trip down memory lane" og skoða allar gamlar myndir og gömul blogg... eitt slíkt tripp átti sér stað í dag og í tilefni þess setti ég tvo nýja linka inn undir "good times"

Botnsskálafréttin er ALLTAF fyndin og því hendi ég henni aftur inn... bara til að ná fram pínu glotti á vissum aðilum.... 8)

Innlent | mbl.is | 17.10.2004 | 17:22
Reynt að brjótast inn í Botnsskála í Hvalfirði
Þjófavarnarkerfi fór í gang um kl. 16, þegar reynt var án árangurs að brjótast inn í Botnsskála í Hvalfirði. Lögregla lýsir eftir grunsamlegum mannaferðum við skálann um þetta leyti og segir að reglulega sé reynt að fara inn í skálann, sem er mannlaus. Ekki sé þó eftir miklu að slægjast.

Sorrí Ari... en ég VERÐ bara að setja þessa mynd inn....   Ari töff   8)8|
hehehehe.... Ari&Arnaldur!!! :haha:

VIÐBÓT!!!   - Til hamingju með 29. júní girls... 7 years and counting... kallar þetta ekki á fögnuð??? :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 16:28:16 / vinstri lúffan

dadara

Rífandi fjör hér...

 

Dagurinn í dag er búinn að vera lengi að líða... lítið sem ekkert að gera hér... :/ eeenn... á móti er ég búin að hafa góðan tíma til að skoða kokteiluppskriftir á netinu... ekki seinna vænna að fara að undirbúa innflutningspartí... slúðrið segir að það verði hugsanlega 14. júlí!!! Meðal spennandi kokteila má nefna Bimbo Juice, Electric Smurf, Drag Queen, Mean Green Love Making Machine og Pink Daquiri... mmm... hljómar vel J

Bankinn er einmitt búinn að staðfesta lánið og því ekkert til fyrirstöðu að flutningar verði fljótlega... kúlkúlkúl....

Ooog... það styttist líka í þjóðhátíð... 37 dagar... ég er EKKI búin að panta miða :s því það virðist vera svo mikið af óákveðnu fólki í kringum mig... dæs... kommon pípúl..  fregnir herma að það sé að verða uppselt í bestu ferðirnar með Gubbólfi (set það svosem ekkert fyrir mig... en SUMIR gera það... hehehe) en ég ÆTLA að fara... treysti á Rut til að bakka mig upp J 

Ég gerði líka mjög áhugaverða uppgötvun í dag yfir hádegismatnum... var að lesa slúðurblað og komst að því að fótaaðgerðin sem ég fer í um jólin er víst nýjasti celeb-sjúkdómurinn... svona aukabein eru víst oftar en ekki fylgifiskur hárra hæla (þótt takkaskór séu nú líklegri örlagavaldur hjá mér) og VIctoria Beckham er eitt dæmi um það...

og þar hafiði það!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 17:09:45 / vinstri lúffan

... Fannborg ...

Jæja... þá er það orðið nokkuð pottþétt... ég er um það bil að verða stoltur eigandi lítillar sætrar íbúðar í Fannborg í Kópavogi... flutningar áætlaðir í næstu viku eða hér um bil :lol: 8):D

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 20:36:45 / vinstri lúffan

...stemningin í gær...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 16:04:29 / vinstri lúffan

...stóra spurningin...

það er spurning hvort bærinn sé ekki orðinn dáldið súr þegar gellur eru farnar að pissa á sig í klósettröðinni!!!!!!
(og nb ekki inná útúrlifuðum vibbastað... heldur nýjum "hipp og kúl" stað!!!)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 01:14:54 / vinstri lúffan

búgíbúgí!!!

góður dagur... byrjaði á góðum fréttum og endaði í góðu skokki í kringum Elliðavatn í geðveiku veðri...gerist ekki betra!!

Hvað varðar góðu fréttirnar... ætla aðeins að bíða með að útlista þær (þó það viti þetta nú flestir) því ég þori ekki að vera bjartsýn fyrren allt er komið á hreint!!! 8)

Annars geri ég bara eins og Rúna og lýsi hér með eftir Esteri... hún sást síðast í bloggheimum fyrir lööööngu síðan og hefur ekki heyrst af henni síðan!!! 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Konfektgerðarfélagið Kristjón